Félag lithimnufræðinga
Lithimnufræði getur gefið mjög ítarlega mynd af heilsu
viðkomandi einstaklings. Lithimnugreining er heildarmynd sem
dregin er af mynstrinu í lithimnunni í augunum. Hver
einstaklingur hefur sitt einstaka mynstur í lithimnunni rétt
eins og fingrafarið. Lithimnugreining getur aðstoðað fólk við
að skilja hluti eins og mígreni eða mjög erfiða sjúkdóma, en
getur einnig verið mjög góð leið við fyrirbyggjandi aðferðir
í heilsurækt.
Lithimnan hefur verið kortlögð af ýmsum fræðimönnum þar sem
líffærin, líkamskerfin og svæði líkamans koma fram.
Lithimnan sýnir hvaða líffæri eða líkamskerfi eru
viðkvæmust fyrir hrörnun og álagi. Meðal annars má sjá tengsl
líkamskerfa, ástand líffæra, uppsöfnun eiturefna, sýrustig
líkamans og bólgumyndanir.
Oft má sjá samband tilfinninga og líkama í lithimnunni og
hvar jafnvægi ríkir og hvar ójafnvægi ríkir á ákveðnum sviðum
hjá einstaklingi og áhrif þess á einstök líffæri.
Með því að skilja mynstrið í augunum getum við séð
heildarmynd líkamans og þannig betur áttað okkur á því hvaða
meðferðir gætu hentað best í hverju tilfelli.
Út frá þessum upplýsingum getur lithimnufræðingurinn ráðlagt
um mataræði og lífsstíl sem fyrirbyggjandi aðgerðir og til að
bæta heilsuna.
Lithimnan getur kennt manni margt um ástand líkamans og
styrkleika og veikleika persónunnar.
Það má segja að mikilvægt hlutverk greinandans sé að fræða
fólk um það ástand sem manneskjan er í og hvaða skref þarf að
taka til að bera ábyrgð á eigin heilsu. Lithimnufræði er leið
sem á vísindalegan máta getur gefið heildrænar upplýsingar um
ástand líkamans og ráðlagt um meðferðir.
Hvað lithimnugreining getur sýnt:
• Meinafræðilegar truflanir og röskun í
uppbyggingu og starfsemi.
• Arfgenga veikleika og styrk í trefjaáferð og líkamsvefjum.
• Uppsöfnun eitraðra úrgangsefna.
• Sýru og bólgumyndanir.
• Hindrandi uppsöfnun á slími.
• Getur sýnt brátt, undirliggjandi, krónískt eða hnignandi
stig bólgu og eituruppsöfnun í hvaða líkamshluta eða líffæri
líkamans sem er.
• Van- eða ofvirkni kirtils eða líffæris.
• Viðbrögð líkamans við meðferð.
• Getur sýnt jákvæða eða neikvæða þróun í líkamshlutum.
• Bendir á ástæður sjúkdóma.
• Er örugg, sársaukalaus leið til greiningar.
• Sýnir ástand og tengsl líkamskerfa.
• Leiðir líkur að tilhneigingu sjúkdóms og getur gefið
hugmynd um forvarnir.
• Bendir á næringarfræðilegt ójafnvægi
• Sýnir tilvist sýkingar (á lágu eða háu stigi)
• Tengsl líffæra koma fram.
• Jafnvægi á hægri og vinstri hlið sérstaklega þegar eitt
líffæri er báðum megin.
• Gefur heildarmynd af einstaklingnum, almennt heilsufar og
vísbendingu um framvindu.
• Grundvallargerð og styrkleikastig og meðfædda hæfileika til
að vinna á sjúkdómum.
• Að bæling á sjúkdómi er ekki lækning og sýnir hvernig
sjúkdómur getur orðið langvinnt sjúkdómsástand.
• Að lækning hefst innra með okkur.
• Hvernig áhrif maginn og meltingarvegurinn hefur á aðra
líkamshluta í gegnum blóðrás, sogæðar og taugakerfi.
Lithimnugreining getur ekki:
• greint sérstaka sjúkdóma, sýnir aðeins
breytingar í vef.
• sýnt hvar aðgerðir hafa verið gerðar með svæfingu
• greint gallsteina og nýrnasteina, sýnir aðeins
forstigsbreytingar í vef.
• Spáð fyrir um kyn fósturs né um þungun.
• Sýnt sníkjudýr eða örverur, aðeins forstigsbreytingar.
• Spáð fyrir um lífshlaupið eða enda þess.
• Greint einstök eiturefni, eiturlyf eða rotvarnarefni,
aðeins uppsöfnun slíkra efna í einstaka líffærum.
• Greint hverskonar slys, aðeins afleiðingar þess.
Lithimnufræði getur lagt grundvöll að ábyrgri afstöðu
okkar til heilsu okkar og vellíðunar.
Lithimnufræði og meðferðir
Lithimnufræði getur sýnt fram á hvaða
meðferðir gætu gagnast best til að styrkja líkamann þar sem
hann er viðkvæmastur fyrir.
Gildir einu hvort meðferðin er fólgin í aðferðum eins
og:
• Blómadropameðferðum.
• Grasalækningum.
• Ilmolíumeðferðum.
• Höfuðbeina- og spjaldhryggjarjöfnun.
• Nuddi.
• Slökun.
• Jóga.
• Eða hverri andlegri uppvakningu fyrir þeim atriðum sem hafa
þau áhrif á líkama okkar sem leiða til vanlíðunar.
Lithimnufræðin eru gjarnan tengd náttúrulækningum og
heildrænum aðferðum í heilsuvernd. Ýmsar náttúrlegar
lækningaraðferðir eru þá gjarnan notaðar til að hjálpa fólki
að bæta heilsu sína eins og jurtalyf, blómadropar, hreinsun
líkamans með bættu fæði og föstum, réttri hreyfingu, nuddi og
öðrum ráðum sem að gagni gætu komið.
Lithimnugreining er ekki lækning. Greining hjá
lithimnufræðingi getur aðeins sýnt ástand ýmissa líffæra og
líkamans í heild sinni. Í framhaldi af því er ráðlagt um
meðferðir til að ná betri heilsu.
Lithimnugreining er ekki forspá. Aðeins
forstigseinkenni í vefjum eða líffærum má sjá, sem að vísu
geta leitt til langtímaveikinda, ef ekki er neitt að gert.
Lithimnufræði getur uppfrætt okkur nánar um orsakir og
afleiðingar mataræðis, hugarfars og lífernis sem kemur af
stað ferli sem færir okkur vanlíðan og síðar sjúkdóma.
Með ábyrgri afstöðu okkar getum við tekið á okkar málum og
unnið gegn vanlíðan og sjúkdómum sem herja á okkur.
Formaður, FL, félags lithimnufræðinga er Lilja
Oddsdóttir, sími: 848 9585.
Vefsíður þar sem hægt er að kynna sér lithimnufræði:
www.eyology.com,
www.heilsumeistaraskolinn.com