
Til baka
Lög Bandalags íslenskra græðara
1. gr.
Nafn og varnarþing
Heiti bandalagsins
er Bandalag íslenskra græðara (BÍG). Með orðinu græðari í
lögum þessum, er átt við þá sem leggja stund á heilsutengda
þjónustu utan hinnar almennu heilbrigðisþjónustu. Slík
þjónusta felur í sér meðferð með það að markmiði að efla
heilsu fólks, lina þjáningar, draga úr óþægindum og stuðla að
heilun. Bandalagið er samband fagfélaga græðara.
Enskt heiti þess er The Association of Complimentary and
Alternative Medicine in Iceland (ACAMI). Heimili þess og
varnarþing er í Reykjavík. Bandalagið tekur ekki afstöðu til
trúarskoðana og stjórnmála með neinum
hætti.
2. gr.
Tilgangur bandalagsins
er:
1. að vera
hvetjandi og ráðgefandi regnhlífarsamtök fagfélaga græðara á
Íslandi.
2. að styðja aðildarfélög í innra starfi þeirra og út á við
eftir því sem við á.
3. að aðstoða við úrlausn ágreiningsefna, sem upp kunna að
koma innan aðildarfélaga, sé þess óskað.
4. að koma fram sem málsvari græðara gagnvart stjórnvöldum,
neytendum og á opinberum vettvangi þegar þess gerist þörf.
5. að tryggja sérstöðu og sterka ímynd íslenskra græðara í
samfélaginu.
6. að tryggja viðurkenningu og réttindi íslenskra græðara sem
fagfólks.
7. að vinna að málefnum íslenskra græðara sem fagfólks.
8. að stuðla að því að íslenskir græðarar hafi góða menntun,
ástundi fagleg vinnubrögð og starfi eftir siðareglum og lögum
um græðara.
9. að tryggja að aðgangur neytenda að þjónustu græðara sé
óheftur.
10. að efla samstarf græðara á milli.
11. að vera vettvangur fyrir upplýsingaflæði og skoðanaskipti
meðal íslenskra græðara.
12. að stuðla að innlendum rannsóknum á heildrænum
meðferðartegundum.
13. að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi fyrir hönd íslenskra
græðara.
14. að reka skráningarkerfi fyrir græðara, skv. lögum
Alþingis um græðara nr. 34/2005.
3. gr.
Aðildarreglur
Umsókn félags um
aðild að bandalaginu skal vera skrifleg og send stjórn BÍG
til samþykktar fyrir 1. febrúar ár hvert. Uppfylli félagið
skilyrði laga um græðara, skal umsóknin lögð fyrir ársþing
Bandalags íslenskra græðara til samþykktar. Hvert
aðildarfélag innan vébanda bandalagsins starfar sjálfstætt.
Aðildarfélög skulu halda aðalfund einu sinni á ári. Hjá
bandalaginu skulu liggja fyrir lög og siðareglur hvers
aðildarfélags, sem skulu vera í samræmi við Lög um græðara
nr. 34/2005, samþykkt á Alþingi 2. maí 2005, og reglugerð nr.
877 um frjálst skráningarkerfi græðara.
Hjá bandalaginu skulu einnig liggja fyrir menntunarkröfur
þess, sem skulu að lágmarki vera 660 kennslustundir, þar af 6
einingar í líffæra- og lífeðlisfræði og 5 einingar í
sjúkdómafræði á framhaldsskólastigi, auk gildra
skyndihjálparréttinda.
Heimilt er að veita undanþágu frá ofangreindum skilyrðum um
menntun ef öll nýliðun í viðkomandi fagfélagi lýtur þessum
kröfum. Aðildarfélög skulu opin öllum sem tilheyra viðkomandi
fagi, og uppfylla námskröfur þess.
Úrsögn úr bandalaginu skal vera skrifleg og send stjórn, enda
hafi aðalfundur aðildarfélagsins tekið þá ákvörðun. Gegni
aðildarfélag BÍG ekki þeim skyldum er því ber samkvæmt lögum
og samþykktum eða vinni gegn hagsmunum bandalagsins getur
bandalagsþing vikið viðkomandi aðildarfélagi skriflega úr
bandalaginu hafi skriflegri áminningu ekki verið sinnt.
Tillaga að brottvikningu getur verið lögð fram af einstöku
aðildarfélagi og/eða stjórn bandalagsins, slík tillaga skal
lögð fyrir á bandalagsþingi, sbr. 7. gr. og þarf samþykki 2/3
hluta þingmanna til að öðlast gildi.
4. gr.
Skipun og hlutverk
stjórnar, starfsreglur ofl.
Skipun og hlutverk
Stjórn
bandalagsins skal skipuð einum fulltrúa og einum varafulltrúa
frá hverju aðildarfélagi. Hvert aðildarfélag skipar sinn
fulltrúa í stjórn, til tveggja ára í senn, æskilegt er að
stjórnarmenn komi úr stjórn viðkomandi aðildarfélags. Skipun
fulltrúa í stjórnina skal hagað þannig að aldrei fleiri en
2/3 stjórnarmeðlima ganga úr stjórninni samtímis.
Ef vantrauststillaga hefur verið borin upp fyrir
bandalagsþing og hlotið þar samþykki 2/3 hluta þingmanna, er
stjórn skylt að segja af sér. Skal þá skipa nýja stjórn innan
mánaðar, en fráfarandi stjórn er skylt að rækja störf sín þar
til sú skipan hefur átt sér stað.
Formaður stjórnarinnar sem jafnframt er formaður bandalagsins
skal kjörinn af bandalagsþingi, sbr. 7. gr., úr hópi skipaðra
stjórnarmanna. Formaður skal kjörinn til tveggja ára í senn
og má lengst sitja þrjú kjörtímabil samfellt.
Stjórnin skiptir með sér störfum. Utan sérkjörins formanns,
skal valinn einn varaformaður, einn gjaldkeri og einn ritari.
Varaformaður stjórnar skal vera staðgengill formanns í
forföllum hans. Stjórnin ræður málefnum bandalagsins með þeim
takmörkunum sem lög þessi setja og ber ábyrgð gerða sinna
fyrir bandalagsþingi. Formaður BÍG er talsmaður stjórnar og
annast daglegan rekstur bandalagsins, auk þess sem hann
stýrir stjórnarfundum og sinnir öðrum þeim verkefnum sem
stjórn kann að fela honum og lög heimila. Stjórnin skipar í
nefndir sem starfa á vegum bandalagsins og tilnefnir fulltrúa
aðildarfélaganna til starfa í þær nefndir og ráð sem það á
aðild að. Sjá nánar verklagsreglur stjórnar Bandalags
íslenskra græðara.
Stjórn leggur endurskoðaða reikninga síðasta árs fyrir
ársþing, hefur umsjón með eigum bandalagsins og gætir
hagsmuna þess í hvívetna. Ársþing skal kjósa tvo skoðunarmenn
reikninga bandalagsins og einn til vara, til tveggja ára í
senn.
Prókúruhafar eru gjaldkeri bandalagsins og formaður.
Meirihluti stjórnarmanna ritar firma bandalagsins.
Reglur og samþykktir
Stjórnarmenn skulu
kynna í aðildarfélögum sínum lög þessi og ákvarðanir stjórnar
sem teknar eru á grundvelli þeirra sem og starfsemi
bandalagsins almennt. Stjórnin skal vinna innan þess ramma
sem lög þessi setja ásamt lögum um græðara nr. 34/2005,
samþykktum á Alþingi 2. maí 2005, og reglugerð nr. 877 um
frjálst skráningarkerfi græðara. Ákvarðanir sem falla utan
valdsviðs hennar samkvæmt þessu eru ógildar.
5. gr.
Reikningar
Reikningsár bandalagsins er almanaksárið. Stjórnin skal
leggja fram árlegt reikningsuppgjör. Skoðunarmenn
bandalagsins fara yfir reikninga og staðfesta þá.
Endurskoðaðir reikningar skulu lagðir fram á bandalagsþingi
ár hvert.
6. gr.
Árgjald
Árgjald
bandalagsins skal ákveðið af bandalagsþinginu til eins árs í
senn. Árgjald til bandalagsins skal greitt fyrir 1.
nóvember ár hvert. Hvert aðildarfélag skal standa skil á
árgjaldi samkvæmt fjölda fullgildra félagsmanna.
7. gr.
Ársþing Bandalags
íslenskra græðara
Ársþing Bandalags íslenskra græðara og ályktanir
Ársþing Bandalags
íslenskra græðara fer með æðsta vald í málefnum bandalagsins.
Á ársþingi sem og aukaþingi hafa einungis þingmenn
aðildarfélaganna kjörgengi og atkvæðisrétt: Þingmaður skal
vera fullgildur félagi og skal formaður aðildarfélags vera
einn af þingmönnum ásamt fulltrúa félagsins í BÍG. Aðrir
þingmenn skulu kosnir á aðalfundi hvers aðildarfélags og fer
fjöldi þeirra eftir fjölda fullgildra félagsmanna.
Aðildarfélag með 3-50 fullgilda félagsmenn skal hafa 3
þingmenn og 3 varaþingmenn, og fyrir hverja 50 fullgilda
félagsmenn þar yfir bætist við 1 þingmaður og 1 til vara.
Áður en bandalagsþing hefst skulu þingmenn leggja fram
kjörbréf frá félagi sínu til staðfestingar. Hver þingmaður
hefur eitt atkvæði.
Stjórn bandalagsins ber ábyrgð á störfum, hagsmunum og eigum
þess gagnvart aðildarfélögunum og bandalagsþingi. Ársþing
skal haldið eigi síðar en í lok maí ár hvert og skal til þess
boðað skriflega með þriggja vikna fyrirvara hið skemmsta.
Fundartíma skal tilgreina í fundarboði svo og fundarefni. Í
fundarboði skal einnig getið þeirra sem eru í framboði til
formanns bandalagsins. Bandalagsþing telst löglegt hafi
löglega verið til þess boðað. Stjórnin boðar til
bandalagsþings, undirbýr það og sendir þingskjöl til
aðildarfélaga minnst 14 dögum fyrir þingið.
Stjórn BÍG skipar kjörnefnd eigi síðar en viku fyrir ársþing
og skal nefndin hefja störf þá þegar. Kjörnefnd þessi skal
hafa það hlutverk að stjórna kosningu í embætti á ársþingi.
Í upphafi bandalagsþings skal kjósa sérstakan þingforseta og
2 þingritara eftir tilnefningu. Forseti og þingritarar skulu
gera fundargerð bandalagsþings.
Dagskrá ársþings skal
vera:
1. Þingsetning.
2. Kosning þingforseta og þingritara.
3. Fundargerð síðasta bandalagsþings borin upp til
samþykktar.
4. Skýrsla formanns.
5. Reikningar bandalagsins lagðir fram til samþykktar.
6. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
7. Atkvæðagreiðsla um árgjald.
8. Skýrsla NSK-fulltrúa
9. Kosning formanns.
10. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
11. Önnur mál.
12. Þingslit.
8. gr.
Breytingar á lögum
Lögum bandalagsins
verður aðeins breytt á ársþingi og skal tillögum til
lagabreytinga eða um breytingar á starfstilhögun skilað til
stjórnar eigi síðar en þremur vikum fyrir ársþing. Skal
stjórnin senda aðildarfélögum tillögurnar minnst 14 dögum
fyrir ársþing til kynningar. Nái tillaga til lagabreytingar
samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða tekur hún gildi.
9. gr.
Aðrir bandalagsfundir og
aukaþing
Stjórnin getur
boðað til almenns bandalagsfundar og aukaþings telji hún þörf
á því. Þeir skulu boðaðir með minnst 14 daga fyrirvara.
Stjórninni er skylt að halda aukaþing ef minnst þriðjungur
aðildarfélaganna óskar þess skriflega, enda varði fyrirhugað
fundarefni málefni er varðar starfssvið og hagsmuni
bandalagsins. Slíkt þing skal halda innan þriggja vikna frá
því að hin skriflega ósk barst stjórninni.
Aukaþing skal boða með skriflegri tilkynningu þar sem fram
kemur fundarefni. Tilkynninguna skal senda til stjórna
aðildarfélaga með pósti eða öðrum sambærilegum hætti.
10. gr.
Formannafundir
Formenn
aðildarfélaga skulu funda með stjórn bandalagsins að lágmarki
einu sinni á ári.
11. gr.
Slit bandalagsins
Komi fram tillaga
frá minnst þremur félögum, sem standa að Bandalagi íslenskra
græðara, um að bandalaginu skuli slitið, skal hún tekin fyrir
á lögmætu bandalagsþingi. Til þess að samþykkja þá tillögu
þarf minnst ¾ hluta atkvæða. Hafi slík tillaga verið
samþykkt, skal gera öllum aðildarfélögum grein fyrir henni í
þingskýrslunni og tillagan síðan látin ganga til næsta
þings.Verði tillagan samþykkt aftur er það fullgild ákvörðun
að leggja bandalagið niður. Verði Bandalag íslenskra græðara
lagt niður renna eignir bandalagsins til aðildarfélaganna í
hlutfalli við fjárhagslegt framlag þeirra.
Einstök aðildarfélög geta einhliða sagt sig úr bandalaginu en
við þær aðstæður fer ekki fram uppgjör á eignum félagsins.
Fulltrúar og félagsmenn aðildarfélags sem hefur sagt sig úr
bandalaginu með þessum hætti missa umsvifalaust öll réttindi
sem bundin eru við bandalagsaðild. Enda hefur slík úrsögn
verið tilkynnt með formlegum hætti til stjórnar bandalagsins.
12. gr.
Breytingar á lögbundnu
hlutverki
Lög þessi skal
endurskoða til samræmis við lögbundið hlutverk bandalagsins á
hverjum tíma.
Lög þessi voru
samþykkt á ársþingi Bandalags íslenskra græðara 26. maí 2008.
Stefnuskrá Bandalags íslenskra
græðara
Bandalag íslenskra græðara hefur
eftirtalin markmið:
1. Að auka skilning og velvirðingu
heilbrigðisyfirvalda, heilbrigðisstétta og almennings á
starfsemi græðara.
2. Að virðisaukaskattur verði felldur niður af starfsemi
græðara.
3. Að þjónusta græðara verði niðurgreidd af hinu opinbera.
4. Að aðrar úrbætur verði gerðar á starfsumhverfi græðara.
5. Að auka innlendar rannsóknir á heildrænum
meðferðartegundum.
6. Að stofnað verði til útgáfu fréttabréfs sem þjóni
aðildarfélögunum til upplýsingagjafar og skoðanaskipta.
Samþykkt á ársþingi Bandalags íslenskra
græðara 26. maí 2008.
Verklagsreglur stjórnar Bandalags íslenskra
græðara
Með vísun í 4. gr. laga BÍG
1. Formaður
BÍG er talsmaður og fulltrúi stjórnar Bandalags íslenskra
græðara út á við og starfar í umboði stjórnar. Hann hefur
yfirumsjón með daglegum rekstri bandalagsins.
2. Varaformaður BÍG er staðgengill formanns.
3. Ritari BÍG sér um ritun fundargerða. Fundargerðir skulu
sendar með tölvupósti til athugasemda að loknum stjórnarfundi
og bornar upp til samþykktar á næsta fundi.
4. Ritari ber ábyrgð á uppfærslu heimasíðu bandalagsins.
5. Gjaldkeri BÍG ber ábyrgð á fjárreiðum og reikningshaldi
bandalagsins gagnvart ársþingi. Gjaldkeri skal veita stjórn
yfirlit yfir fjárhagsstöðu bandalagsins minnst einu sinni á
ári, og oftar sé þess óskað.
6. Stjórn bandalagsins endurskoðar fjárhagsáætlun BÍG árlega
á grundvelli yfirlits sem gjaldkeri veitir yfir fjárhagsstöðu
bandalagsins.
7. Stjórnarmenn bandalagsins bera ábyrgð á að fræða sitt
aðildarfélag um málefni bandalagsins og skulu sjá til þess að
fundargerðir berist stjórn síns aðildarfélags. Hvert
aðildarfélag skipar einn stjórnarmann og skal hann
endurspegla vilja síns aðildarfélags innan stjórnar
bandalagsins, þar sem hann situr í stjórn bandalagsins sem
fulltrúi aðildarfélags síns.
8. Stjórn bandalagsins skipar fulltrúa og varafulltrúa
bandalagsins til setu í NSK, og boðar þá á stjórnarfundi til
að fjalla um framgang málefna græðara á Íslandi, sem og
Norðurlöndum, svo oft sem þurfa þykir. NSK-fulltrúi kynnir
framgang málefna NSK á ársþingi bandalagsins.
9. Formenn aðildarfélaga skulu reglulega gera grein fyrir
starfsemi félaganna. Þeir bera ennfremur ábyrgð á að senda
ársskýrslu sína (skýrslu formanns og/eða fundargerð
aðalfundar) til ritara Bandalags íslenskra græðara. Formenn
aðildarfélaga bera ábyrgð á allri starfsemi síns félags.
Rekstur þeirra er BÍG óviðkomandi en verður þó að samræmast
lögum og siðareglum bandalagsins, sem og lögum um græðara nr.
34/2005.
10. Stjórn bandalagsins boðar árlega formenn aðildarfélaga
til fundar þar sem fjallað er um framgang og starfsemi BÍG.
11. Eignir og gögn bandalagsins skulu varðveittar á
skrifstofu þess að undanskildum farsíma BÍG sem formaður ber.
12. Verklagsreglum þessum verður einungis breytt með samþykki
2/3 hluta stjórnar.
Samþykkt á ársþingi Bandalags íslenskra
græðara 26. maí 2008.
Verklagsreglur varðandi frjálst skráningarkerfi
græðara
Skráningarkerfið er í umsjón Bandalags
íslenskra græðara
1. Stjórn
Bandalags íslenskra græðara hefur yfirumsjón með frjálsu
skráningarkerfi græðara. Stjórn BÍG getur ennfremur, sé þess
óskað, skipað starfsmann/-menn til aðstoðar við að halda utan
um skráningu í frjálst skráningarkerfi græðara.
2. Þegar stjórn aðildarfélags sendir gögn varðandi
nýskráningu inn í skráningarkerfið skulu þeir sem hafa
yfirumsjón fara yfir umsókn og fylgiskjöl til að ganga úr
skugga um að ekkert vanti.
3. Stjórn sér um skráningu græðara inn í frjálst
skráningarkerfi græðara og tryggir að réttar upplýsingar um
skráða græðara séu birtar á heimasíðu BÍG.
4. Stjórn er tengiliður milli BÍG og tryggingafélaga. Hún
hefur umsjón með að réttar upplýsingar berist til
tryggingafélaga.
5. Stjórn BÍG ber ábyrgð á fjárreiðum og reikningshaldi
skráningarkerfisins og ber ábyrgð á að halda fjárhag
skráningarkerfisins aðskildum frá öðrum fjármunum
bandalagsins. Hún sér um að senda út greiðsluseðla vegna
nýskráningar og vegna þjónustugjalds.
6. Komi upp ágreiningsmál varðandi skráningu skal það mál
tekið upp á stjórnarfundi BÍG og úrlausn fundin.
7. Fartölva skráningarkerfisins er í umsjón og vörslu ritara
BÍG.
Samþykkt á ársþingi Bandalags íslenskra
græðara 26. maí 2008.