
Til baka
Siðareglur Bandalags íslenskra græðara
Siðareglur þessar gilda fyrir fullgilda
félaga í Bandalagi íslenskra græðara.
Tilgangur þeirra er að styrkja góða og ábyrga meðhöndlun
fyrir þann skjólstæðing sem leitar eftir meðhöndlun hjá
græðara, ásamt því að viðhalda faglegu sambandi milli
græðara.
1.
Allir græðarar
skulu vinna eftir gildandi lögum hvers tíma, í því landi sem
þeir vinna. Græðari skal ekki mismuna skjólstæðingum sínum
vegna kynþátta, litarhátts, trúarbragða, þjóðernis, aldurs,
kyns, kynhneigðar, sjúkdóma, fötlunar, stjórnmálaskoðunnar,
þjóðfélagsstöðu eða annara fordóma.
2.
Græðari skal
aðeins nota viðurkenndar aðferðir og tækni sem eru út frá
fræðum, heimspeki, menntun og starfsreynslu sem hver græðari
hefur menntun til. Græðara ber skylda til að vísa
skjólstæðingum til annara meðhöndlara, læknis/spítala henti
það betur.
3.
Græðari gefur
engin loforð um lækningu.
4.
Græðari skal halda
skýrslur yfir skjólstæðinga þar sem fram kemur, einkenni eða
ástæða komu skjólstæðings, lýsing á meðhöndlun og niðurstöður
að meðhöndlun lokinni.
5.
Græðari hefur
þagnarskyldu og trúnað við skjólstæðinga sína og ber ávallt
að sýna þeim virðingu og traust.
6.
Græðari skal
stuðla að góðri samvinnu við aðra græðara og forðast illt
umtal.
7.
Græðari skal gæta
þess að særa ekki blygðunarsemi skjólstæðinga sinna, né eiga
við þá náið samband.
8.
Græðara er
óheimilt að vera undir áhrifum áfengis eða hverskonar
vímuefna við meðhöndlun skjólstæðinga.
Skjólstæðingur hefur rétt á að kvarta yfir græðara. Kvörtunin
þarf að vera skrifleg og skal sendast til viðkomandi
aðildarfélags og siðanefndar.
9.
Græðari hefur rétt
á að kvarta yfir skjólstæðingi. Kvörtun þarf að vera skrifleg
og sendast til siðanefndar viðkomandi aðildarfélags.