Til baka
Lög um græðara
nr.
34/2005, samþykkt á Alþingi 2. maí 2005
1. gr.
Markmið og gildissvið.
Markmið laga þessara er að stuðla að gæðum heilsutengdrar
þjónustu græðara og öryggi þeirra sem leita eftir slíkri
þjónustu eða nýta sér hana. Markmiði þessu skal m.a. náð með
því að koma á fót frjálsu skráningarkerfi fyrir græðara.
Lögin taka til skráðra græðara og eftir því sem við á annarra
græðara, þótt óskráðir séu.
2. gr.
Skilgreiningar.
Með orðinu græðari
í lögum þessum er átt við þá sem veita heilsutengda þjónustu
utan hinnar almennu heilbrigðisþjónustu.
Með heilsutengdri þjónustu græðara er átt við þjónustu sem
einkum tíðkast utan hinnar almennu heilbrigðisþjónustu og
byggist fremur á hefð og reynslu en gagnreyndum vísindalegum
niðurstöðum. Slík þjónusta felur í sér meðferð með það að
markmiði að efla heilsu fólks, lina þjáningar, draga úr
óþægindum og stuðla að heilun.
3. gr.
Skráningarkerfi.
Komið skal á fót
frjálsu skráningarkerfi fyrir græðara. Skráningarkerfið skal
vera í umsjá Bandalags íslenskra græðara. Bandalaginu er
heimilt að innheimta skráningargjald sem standa skal undir
kostnaði við skráningu hvers græðara og rekstri og viðhaldi
skráningarkerfisins. Bandalagið ákveður fjárhæð
skráningargjalds og skal hún staðfest af ráðherra. Bandalagið
skal tryggja að almenningur hafi greiðan aðgang að
upplýsingum um það hvaða græðarar eru skráðir á hverjum tíma
og hver sé starfsgrein þeirra.
Skráðum græðara er skylt að hafa skráningarskírteini sitt á
áberandi stað á starfsstöð sinni þannig að það sé örugglega
sýnilegt þeim sem sækja sér þjónustu viðkomandi græðara.
Heimilt er að skrá græðara sem eru félagar í fagfélagi sem á
aðild að skráningarkerfinu. Óski græðari sem ekki á aðild að
fagfélagi eftir skráningu er skráning hans heimil að því
tilskildu að hann uppfylli menntunarkröfur þess fagfélags sem
hann ella ætti að tilheyra og önnur skilyrði skráningar og
sæti eftirliti Bandalags íslenskra græðara. Uppfylli skráður
græðari ekki lengur skilyrði skráningar skal Bandalag
íslenskra græðara taka hann af skrá.
Ráðherra ákveður að fenginni umsögn landlæknis og Bandalags
íslenskra græðara hvort fagfélag fær aðild að frjálsu
skráningarkerfi fyrir græðara.
Ráðherra skal með reglugerð kveða á um þær kröfur sem
fagfélög þurfa að uppfylla til að eiga aðild að
skráningarkerfinu. Þar skal einnig kveðið á um fyrirkomulag
skráningar, þær upplýsingar sem fram þurfa að koma um
starfsgrein græðara, aðgang almennings að skrá yfir græðara,
vistun skráningarkerfisins, eftirlit með viðhaldi þess og þær
kröfur sem græðarar þurfa að uppfylla til að fá skráningu.
Nú uppfyllir fagfélag ekki lengur þær kröfur sem reglugerð
kveður á um og getur ráðherra þá ógilt aðild þess að
skráningarkerfinu.
4. gr.
Ábyrgðartrygging.
Græðari ber
bótaábyrgð á störfum sínum eftir almennum reglum.
Skráðum græðurum er skylt að hafa í gildi ábyrgðartryggingu
hjá vátryggingafélagi sem hefur starfsleyfi hér á landi vegna
tjóns sem leitt getur af gáleysi í störfum þeirra. Í stað
vátryggingar skal græðara þó heimilt að leggja fram ábyrgð
sem veitt er af viðskiptabanka eða sparisjóði, eða annars
konar tryggingu sem veitir sambærilega vernd að mati
ráðherra. Ráðherra setur reglugerð um lágmark
vátryggingarfjárhæðar og framkvæmd vátryggingarskyldunnar.
Hann skal hafa samráð við Bandalag íslenskra græðara og
landlækni um ákvörðun vátryggingarfjárhæðarinnar.
5. gr.
Trúnaðar- og þagnarskylda.
Græðurum er skylt
að gæta fyllstu þagmælsku um öll einkamál sem þeir fá
vitneskju um í starfi sínu nema lög bjóði annað. Þagnarskylda
helst þótt græðari láti af störfum og einnig þótt sá sem
notið hefur þjónustu viðkomandi græðara sé fallinn frá. Um
vitnaskyldu græðara gilda ákvæði læknalaga.
6. gr.
Skráning upplýsinga um heilsutengda þjónustu græðara.
Að höfðu samráði
við landlækni og Bandalag íslenskra græðara setur ráðherra
með reglugerð skilyrði um skráningu og meðferð upplýsinga
vegna heilsutengdrar þjónustu græðara sem veitt er utan
hinnar almennu heilbrigðisþjónustu. Að öðru leyti fer um
meðferð upplýsinga, þar á meðal öryggi þeirra, samkvæmt lögum
um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og reglum settum
með stoð í þeim.
7. gr.
Takmarkanir á heilsutengdri þjónustu
græðara.
Meðferð vegna alvarlegra sjúkdóma skal einungis veitt af
löggiltum heilbrigðisstarfsmönnum. Þetta gildir þó ekki ef
sjúklingur óskar eftir þjónustu græðara eftir samráð við
lækni. Græðari skal í slíkum tilvikum fullvissa sig um að
samráð hafi átt sér stað.
Græðurum er óheimilt að gera aðgerðir eða veita meðferð sem
fylgir alvarleg áhætta fyrir heilsu sjúklings. Sama máli
gegnir um meðferð sjúkdóma sem falla undir ákvæði
sóttvarnalaga um smitsjúkdóma og hafa í för með sér hættu
fyrir almenning.
Græðurum er óheimilt að ráðleggja fólki að hætta lyfjameðferð
eða annarri meðferð sem það hefur hafið hjá löggiltu
heilbrigðisstarfsfólki.
Verði græðari þess var að skjólstæðingur sé með vandamál sem
fellur utan starfssviðs græðara eða að meðferðin hafi ekki
borið tilætlaðan árangur ber honum að vísa skjólstæðingi til
læknis.
Heilbrigðisstofnun er heimilt að koma til móts við óskir
sjúklinga sem vilja nýta sér heilsutengda þjónustu græðara
þar sé það í samræmi við stefnu stofnunarinnar og ber þá að
skrá það í sjúkraskrá sjúklings.
Ráðherra getur með reglugerð, að höfðu samráði við Bandalag
íslenskra græðara og landlækni, kveðið nánar á um þá
sjúkdóma, aðgerðir og meðferð sem getið er í 1. og 2. mgr.
8. gr.
Starfsheiti og kynning.
Einungis sá sem er
skráður græðari skv. 3. gr. hefur rétt til þess að nota
heitið skráður í tengslum við starfsgrein sína.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð sem takmarkar
kynningar og auglýsingar á starfsemi þeirra sem stunda
heilsutengda þjónustu með hliðsjón af þeim ákvæðum laga sem
gilda um heilbrigðisstéttir.
9. gr.
Viðurlög.
Brot gegn lögum
þessum eða reglum settum samkvæmt þeim, framin af ásetningi
eða vítaverðu gáleysi, varða sektum eða fangelsi allt að
þremur mánuðum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum
lögum. Um hlutdeild fer eftir ákvæðum 22. gr. almennra
hegningarlaga.
Með brot gegn lögum þessum skal fara að hætti opinberra mála.
10. gr.
Endurskoðun.
Lög þessi skal endurskoða eigi síðar en fimm árum eftir
gildistöku þeirra.
11. gr.
Gildistaka.
Lög þessi öðlast
þegar gildi.
Samþykkt á
Alþingi 2. maí 2005.