Til baka
Reglugerð nr. 876 um starfsábyrgðartryggingu
græðara
1. gr.
Græðara sem
skráður er skv. 3. gr. laga nr. 34/2005 um græðara, er skylt
að hafa í gildi ábyrgðartryggingu hjá vátryggingafélagi sem
starfsleyfi hefur hér á landi vegna tjóns sem leitt getur af
gáleysi í störfum hans skv. 4. gr. laga um græðara. Í stað
vátryggingar er græðara þó heimilt að leggja fram ábyrgð sem
veitt er af viðskiptabanka eða sparisjóði, eða annars konar
tryggingu sem veitir sambærilega vernd að mati ráðherra.
2. gr.
Vátryggingin skal
taka til tjóns sem leitt getur af gáleysi af starfi græðarans
á því fagsviði sem skráning hans nær til. Vátryggingaskyldan
fellur niður falli skráning græðarans skv. 3. gr. laga um
græðara niður.
3. gr.
Ábyrgð samkvæmt
vátryggingunni vegna hvers einstaks tjónsatviks skal nema hið
minnsta kr. 1.000.000 og heildarfjárhæð vátryggingabóta innan
hvers vátryggingaárs skal nema kr. 5.000.000 að lágmarki.
Fjárhæðir þessar skulu fylgja vísitölu neysluverðs og
breytast 1. janúar ár hvert í samræmi við þróun
vísitölunnar. Grunnvísitalan miðast við september 2006,
265,6 stig.
4. gr.
Heimilt er að
áskilja eigin áhættu í samningi aðila um ábyrgðartryggingu,
en slíkt má ekki skerða rétt þriðja manns til bóta úr hendi
vátryggingafélags. Tilhögunar eigin áhættu skal getið í
vátryggingaskilmálum, vátryggingaskírteini eða
iðgjaldakvittun. Vátryggingafélagið getur endurkrafið þann
sem valdið hefur tjóni af stórfelldu gáleysi. Bætur má lækka
eða fella niður, ef sá sem fyrir tjóni varð var meðvaldur að
tjóni.
5. gr.
Vátryggingafélögum
ber að kynna Fjármálaeftirlitinu vátryggingaskilmála
starfsábyrgðartryggingar þessarar áður en þeir eru boðnir
skráðum græðurum.
6. gr.
Falli
ábyrgðartryggingin niður ber vátryggingafélagi að tilkynna
Bandalagi íslenskra græðara um niðurfellingu hennar samhliða
því sem félagið tilkynnir græðurum sjálfum um lok
vátryggingarinnar. Þótt vátryggingin sé úr gildi fallin, ber
vátryggingafélagið áfram ábyrgð gagnvart þriðja manni á
tjónstilvikum sem verða, þar til 14 dagar eru liðnir frá
lokum vátryggingarinnar og/eða dagsetningu tilkynningar til
Bandalags íslenskra græðara um lok hennar.
7. gr.
Uppfylli skráður
græðari ekki skilyrði reglugerðar þessarar um
starfsábyrgðartryggingu skal hann felldur af skrá þeirri sem
mælt er fyrir um í 3. gr. laga nr. 34/2005 um græðara og
Bandalag íslenskra græðara hefur eftirlit með.
8. gr.
Reglugerð þessi
sem sett er samkvæmt heimild í 2. mgr. 4. gr. laga nr.
34/2005 um græðara, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu, 9. október 2006.
Siv Friðleifsdóttir.
Sólveig Guðmundsdóttir.
__________
B-deild – Útgáfud.: 23. október 2006