Organon 10 ára


Pasted Graphic 1
19.00.2009

Um þessar mundir eru liðin 10 ár frá því Organon, fagfélag hómópata, var stofnað. Af því tilefni fékk félagið heimsfrægan hómópata, Miröndu Castro, til að koma til Íslands og halda námskeið. Námskeiðið sóttu nærri 70 manns og að því loknu var haldin afmælisveisla. Bandalag íslenskra græðara óskar félagsmönnum til hamingju með afmælið.

Miranda Castro og Anna Birna Ragnarsdóttir, formaður Organon, fagfélags hómópata:


Alþjóðleg ráðstefna um Bowentækni


31.08.2009

Fyrsta alþjóðlega ráðstefnan um Bowentækni verður haldin í Bretlandi 24. og 25. apríl 2010. Aðalræðumenn verða Robert Schleip, Tom Myers, G. Lorimer Mosely og Hans Thijssen. Bowentæknin er runnin undan rifjum hins ástralska Tom Bowen, en dætur hans, Pam Trigg og Heather Edmonds, gera sér ferð alla leiðina frá Ástralíu til að fræða ráðstefnugesti um hugmyndaheim föður síns. Sjá nánar á heimasíðu ráðstefnunnar.



Healing the Healers


28.08.2009
Pasted Graphic 1


Alþjóðlega ráðstefnan Healing the Healers verður haldin á Íslandi í fjórða sinn dagana 2.-4. október 2009. Meðal fyrirlesara verða Jaqueline Mast, Anna Katrín Ottesen, Les Moore, Brian D. Dailey, Lilja Petra Ásgeirsdóttir, Daniel Benor, Rick Patterson, Leda Mast, Örn Jónsson og Sara Pierce. Umfjöllunarefnin eru fjölbreytt, en einnig eru verklegar æfingar, skemmtun og slökun. Áherslan er á að græðarar sinni sjálfum sér um leið og þeir læra meira. Sjá nánar á heimasíðu ráðstefnunnar.



Vefnámskeið um hómópatíu


27.08.2009

Dagana 30. ágúst til 3. september 2009 verður The Homeopathic European Summer School í fyrsta sinn sendur út á netinu. Sent verður út beint frá Varna í Búlgaríu en þátttakendur geta sparað sér flug og gistingu, setið heima þess í stað og fylgst með fyrirlesurum á borð við Dinesh Chauhan, Ajit Kuklarni, Roma Buchimensky, Manish Bhatia, Dora Pachova, Kineret Da'abul-Virnik og Boris Shoitov. Sjá nánar á heimasíðu skólans.



Námstefna um náttúrulyf og náttúruvörur


24.08.2009

Þann 26. nóvember 2009 heldur Endurmenntun Háskóla Íslands námstefnu um náttúrulyf og náttúruvörur í samstarfi við Rannsóknastofnun um lyfjamál, lyfjafræðideild Háskóla Íslands og Lyfjafræðingafélag Íslands. Fjallað verður um lög, reglugerðir, notendur, öryggi notkunar, gæði framleiðslu, jóhannesarjurt, garðabrúðu, passíublóm, burnirót, ginseng, trönuber, sólhatt, grænt te, hoodia gordonii, engifer, coleus forskohlii, phytoestrogen, musteristre, freyspálma, og kínahvönn. Nánari upplýsingar og skráning á heimasíðu Endurmenntunar.



Dagur græðara 2009


27.07.2009

Ákveðið hefur verið að halda hátíðlegan Dag græðara í október ár hvert. Dagana 1.-8. október 2009 munu græðarar standa fyrir ýmsum uppákomum víðs vegar um landið og að lokum verður haldin uppskeruhátíð 3. október með fyrirlestrum fyrir almenning og árshátíð fyrir græðara um kvöldið. Dagskrá verður birt á heimasíðu BÍG þegar nær dregur.



Norðurlandafundur á Íslandi


25.07. 2009

NSK, Norðurlandaráð græðara, heldur fund hérlendis 2.-3. október 2009. Ráðið fundar að jafnaði tvisvar árlega og skiptast aðildarlöndin fimm á um að hýsa fundina, en einnig hafa þeir verið haldnir annars staðar í Evrópu. Fimm ár eru liðin frá síðasta fundi hérlendis, en nú er röðin aftur komin að okkur. Tveir fulltrúar koma hingað frá hverju hinna aðildarlandanna. Undirbúningur er kominn vel á veg, en það er á höndum BÍG að finna gistingu og fundarstað. Einhverjir hinna erlendu gesta munu nota tækifærið, dvelja lengur og skoða landið.



Heilsustefna á Indlandi


25.06. 2009

BÍG hefur borist kynning á stórri indverskri heilsustefnu um ayurveda, jóga, náttúrulækningar, hómópatíu o.fl. Stefnan er haldin 18.-21. september 2009 í Nýju Delí á Indlandi. Nánari upplýsingar fást hjá BÍG eða á heimasíðu Arogya 2009.



Norðmenn fella niður virðisaukaskatt


28.02.2009

Þær gleðilegu fregnir hafa borist frá NNH, systurbandalagi BÍG í Noregi, að virðisaukaskattur hafi verið felldur niður af starfsemi skráðra græðara þar í landi frá og með síðustu áramótum. Það er að sjálfsögðu hagur bæði neytenda og veitenda græðaraþjónustunnar að starfsemin sé undanþegin virðisaukaskatti, en einnig ríkisins, þar sem líklegt er að í kjölfarið dragi úr "svartri" atvinnustarfsemi í greininni. Það hefur verið yfirlýst markmið NSK, Norðurlandaráðs græðara, allt frá stofnun að virðisaukaskattur verði felldur niður af heildrænum meðferðum alls staðar á Norðurlöndunum.
Við hjá Bandalagi íslenskra græðara óskum Norðmönnum til hamingju með þessa ákvörðun og vonum að sjálfsögðu að íslenska ríkið taki sér Norðmenn til fyrirmyndar áður en langt um líður. Það er nú enn mikilvægara fyrir almenning en áður að hafa greiðan aðgang að starfsemi græðara, þar sem fyrirsjáanlegur er aukinn niðurskurður og samdráttur í þjónustu hins opinbera heilbrigðiskerfis í kjölfar efnahagskreppunnar.



Fyrsti græðarinn fær skráningu


7.5.2007

Fyrsti græðarinn hefur fengið skráningu samkvæmt skráningarkerfi Bandalags íslenskra græðara sem viðurkennt er af heilbrigðisyfirvöldum. Handhafi fyrsta skráningaskírteinisins er Anna Birna Ragnarsdóttir, hómópati og formaður Bandalags íslenskra græðara og Organon, fagfélags hómópata. Í tilefni af skráningu fyrsta græðarans heimsótti hópur græðara Siv Friðleifsdóttur, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, í ráðuneytið.

Lög um græðara voru sett af Alþingi árið 2005 en markmið þeirra er að stuðla að gæðum í þjónustu græðara og tryggja öryggi þeirra sem nýta sér hana. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hafði áður hvatt aðildarþjóðir sínar til að setja reglur um þessa starfsemi. Í lögunum eru störf græðara skilgreind sem heilsutengd þjónusta sem byggist fremur á hefð og reynslu en gagnreyndum vísindalegum niðurstöðum og sem veitt eru utan almennu heilbrigðisþjónustunnar. Þjónusta græðara felur í sér meðferð sem hefur að markmiði að efla heilsu fólks, lina þjáningar og draga úr óþægindum.

Til að fá skráningu þarf græðari að vera í fagfélagi sem er viðurkennt sem aðili að frjálsu skráningarkerfi Bandalags íslenskra græðara. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra ákveður að fenginni umsögn Landlæknis og Bandalags íslenskra græðara hvort einstök félög uppfylla kröfur sem eru forsenda þess að fá aðild að skráningarkerfinu.  Til þessa hafa fimm fagfélög græðara fengið aðild að skráningarkerfinu og umsóknir tveggja félaga til viðbótar eru til skoðunar. Innan þessara félaga eru starfandi liðlega 500 græðarar og má búast við að á næstunni muni fjöldi þeirra óska eftir formlegri skráningu. Græðarar sem sækja um skráningu þurfa meðal annars að hafa ábyrgðartryggingu sem tryggir skjólstæðinga þeirra vegna tjóns sem kann að hljótast af gáleysi í störfum þeirra.

Fyrsta félagið sem fékk samþykkta aðild að skráningarkerfinu var Organon, félag hómópata, en síðan hafa fjögur önnur fagfélög bæst við en það eru: CranioSacral félag Íslands, Shiatsufélag Íslands, Svæðameðferðafélag Íslands og Félag íslenskra heilsunuddara.
Græðararnir
Græðararnir sem heimsóttu ráðherra í tilefni skráningu fyrsta græðarans:
Frá vinstri, Árni V. Pálmason, CranioSacral félagi Íslands, Anna Birna Ragnarsdóttir, Organon, fagfélagi hómópata, Ásta Agnarsdóttir, Sambandi svæða-og viðbragðsfræðinga á Íslandi, Siv Friðleifsdóttir, Guðrún Jónína, Félagi íslenskra heilsunuddara, og Ragnheiður Júlíusdóttir, Svæðameðferðafélagi Íslands.