web metrics Dagur græðara

Dagskrá dagana 4.- 5.september 2010.

27.07.2010
Í tilefni af 10 ára afmæli Bandalags íslenskra græðara stendur bandalagið fyrir tveggja daga ráðstefnu á Grand Hótel 4. og 5. September 2010. Hægt er að nálgast dagskrána hér og verðskrána hér. Meðal fyrirlesara eru Sveinn G. Einarsson, PhD. Yfirlæknir svæfingadeildar St. Jósefsspítala, Hallgrímur Magnússon læknir, Vilborg Halldórsdóttir, lyfjafræðingur hjá lyfjastofnun Íslands og Þóra JennýGunnarsdóttir, PhD, MS, lektor við Hjúkrunarfræðideild HÍ.


Örnámskeið í tenglsum við Dag Græðara.


27.07.2010
Þann 3.September verður boðið upp á Örnámskeið sem eingöngu eru ætluð félagsmönnum aðildarfélaga BIG. Hægt er að panta miða í gegnum tölvupósttfangið erna@kopur.is. eða greiða andvirði miðans inn á reikninginn 521200-26-521200. Allar nánari upplýsingar um örnámskeiðið er hægt að nálgast
hér.

Dagur græðara 2010


Ákveðið hefur verið að halda dag græðara hátíðlegan helgina 3.-5. september. Dagskráin verður birt hér þegar nær dregur.


Dagur græðara 2009


Fimmtudaginn 1. október var
fylgiblaði dreift með Fréttablaðinu með ýmiss konar umfjöllun um heilbrigði og þá starfsemi sem græðarar stunda. Í blaðinu birtist heilsíðuauglýsing með nöfnum allra skráðra græðara.
Laugardaginn 3. október var fyrirlestradagskrá á Hótel Loftleiðum. Flutt voru fimmtán erindi um fjölbreytt viðfangsefni á borð við raka í húsnæði, samanburð á mataræði til forna og að nýju, rannsóknir á heildrænum meðferðum, ilmolíur, elementin fimm, fréttir af Norðurlandasamstarfinu o.m.fl. Sölu- og kynningarbásar voru í anddyri þar sem margt spennandi gat að líta.
Í tengslum við daginn voru svo græðarar víðs vegar um landið með kynningar- og tilboðsdaga.

Myndir frá degi græðara 2009
Pasted Graphic 2Pasted Graphic 1Pasted Graphic 3Pasted Graphic 4