web metrics Auglýsingar

Dagur græðara 2009 - tilboð og kynningar

Ákveðið hefur verið að halda hátíðlegan dag græðara í október ár hvert. Frá 1. til 8. október 2009 munu græðarar standa fyrir ýmsum uppákomum víðs vegar um landið. Dagur græðara verður haldinn 3. október 2009 með fyrirlestrum fyrir almenning og árshátíð fyrir græðara um kvöldið (sjá hér).

Lilja Oddsdóttir - Reykjavík

Lilja Oddsdóttir lithimnufræðingur býður 50% afslátt á regndropameðferðum (Raindrop Technique®) sem bókaðar verða í október. Regndropameðferð er öflug meðferð á bakið með hágæða kjarnaolíum. Meðferðin getur m.a. styrkt ónæmiskerfið og dregið úr bólgum. Tímapantanir í síma 848 9585 www.heilsumeistaraskolinn.com

Sigrún Sigurðar - Reykjavík

Tilboð á höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð: 30% afsláttur dagana 20. október til 10. nóvember. Tímapantanir í síma 411 5100 www.lauganudd.is

Birna Imsland - Reykjavík

Birna Imsland, hómópati, höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnari og Bowentæknir býður 50% afslátt af fyrsta viðtali í hómópatíumeðferð dagana 6.-8. október. Innifalinn er sami afsláttur á viðtali nr. 2, mánuði síðar. Tímapantanir í síma 562 5727 www.imsland.is/birna