Til baka
Hvað er NSK?
NSK eru
norræn samtök fólks sem vinnur við heildrænar meðferðir
(óhefðbundnar lækningar). Í samtökunum sitja fulltrúar
regnhlífasamtaka frá öllum Norðurlöndum á þessu sviði. Heiti
samtakanna er Nordisk Samarbejds Komité for
ikke-konventionell medisin/terapi (NSK).
Markmið NSK:
Samræmd löggjöf
fyrir þá sem stunda heildrænar meðferðartegundir
(óhefðbundnar lækningar).
Samræmdar siðareglur.
Samræmdur staðall meðhöndlara á Norðurlöndum. Þessi staðall
ætti að geta samræmst lögum ESB.
Samræmdur titill meðhöndlara.
Vinna að því að allir ábyrgir meðhöndlarar öðlist
viðurkenningu og trúverðugleika í samfélaginu.
Vinna að auknum gæðum og þjónustu og skapa þannig meira
öryggi fyrir skjólstæðinga og yfirvöld.
Góð samnorræn grunnmenntun í heildrænum meðferðartegundum.
Virðisaukaskattur verði felldur niður af heildrænum meðferðum
alls staðar á Norðurlöndunum.
Styrkari staða meðhöndlara innan heilbrigðisgeirans og meðal
almennings.
Við viljum:
Vera metin til
jafns við "hefðbundnar" lækningar (skolemedisin)
Geta vísað fólki í rannsóknir.
Geta vísað fólki á stofnanir og boðið upp á heildrænar
meðferðir.
Geta unnið sjálfstætt. Að fólk geti komið til okkar án
tilvísunar læknis.
Íbúar Norðurlanda leita í æ ríkara mæli í heildræn
meðferðarform til lausnar á heilsuvandamálum sínum. Þessi
þróun hefur fylgt aukinni menntun og bættri þjónustu á þessu
sviði.
NSK vinnur að aukinni samstöðu og samvinnu um grunnmenntun.
Með auknum kröfum og samræmingu á menntun fagfólks verður
námsmat á hliðstæðu námi markvissara á Norðurlöndum. Þannig
verða gæði þjónustunnar einnig betur tryggð.
Okkar takmark er að koma á fót traustri samnorrænni
grunnmenntun með sameiginlegum námstitli, svo og
sameiginlegum siða- og starfsreglum.
Það er ósk okkar að rannsóknir á heildrænum meðferðarformum
verði stórauknar á Norðurlöndunum og þannig sköpuð bætt
skilyrði fyrir framhaldsmenntun á háskólastigi. Jafnframt
þarf að tryggja betur lagaleg réttindi meðhöndlara.
Við vonumst til að þessi norræna samvinna geti orðið
innblástur fyrir samvinnu allra Evrópulandanna á þessu
sviði.
Fulltrúar eftirtalinna landssamtaka eiga sæti í NSK:
Svíþjóð: KAM, Komittén för Alternativ Medicin,
www.kam.se
Noregur: NNH, Norske Naturterapeuters
Hovedorganisasjon, www.nnh.no
Danmörk: LNS, Landsorganisationen Natursundhedsrådet,
www.lnsnatur.dk
Finnland: LKL, Luonnonlääketieteeen Keskusliitto
ry, www.lkl.net
Ísland: BÍG, Bandalag íslenskra græðara
YFIRLÝSING
varðandi
GÆÐAVOTTUN Á ÓHEFÐBUNDINNI MEÐHÖNDLUN
1. Inngangur
Aukin notkun
óhefðbundinna meðferða hefur dregið athygli hins opinbera,
stjórnmálamanna og stjórnvalda að því hvernig óhefðbundni
heilbrigðisgeirinn uppfyllir lágmarkskröfur varðandi menntun,
skipulag, siðfræði og sjálfdæmi.
Á Norðurlöndum og í Evrópu almennt hafa fagfélög og
regnhlífarsamtök hvers lands unnið við að setja fram kröfur
um gæði og gæðatryggingu meðferða sem í boði eru innan
óhefðbundna heilbrigðisgeirans.
Á Norðurlöndunum er mikilvægt að tryggja sameiginlegan staðal
í þessum málum og að ná samkomulagi um markmið um aukin gæði
á öllum sviðum.
Markmið þessarar yfirlýsingar er að benda á ýmis atriði og
fastsetja nokkur markmið og staðfesta hversu langt við höfum
náð.
2. Grunnmenntun
NSK hefur gert
drög að framsetningu samræmdrar norrænnar grunnmenntunar og
er sammála um að vísa á módel sem KAM í Svíþjóð hefur þróað
sem æskilegt markmið fyrir öll norrænu löndin.
Hvert og eitt af norrænu löndunum hefur sínar eigin forsendur
og mun þróa sína leið í takt við aðstæður heima fyrir, en
módel KAM er lagt fram sem almennt markmið um lágmarkskröfur.
3. Menntun óhefðbundins
meðhöndlara
Fyrir utan
sameiginlegan grunn þarf menntun græðara að innihalda
fastsettan tímafjölda kennslustunda fyrir hverja
meðferðartegund, t.d. nálastungur, svæðameðferð, hómópatíu
o.s.frv. Í módeli KAM kemur fram tímafjöldi fyrir hverja
meðferðartegund.
Það þarf að vera markmið að þessi meðferðarform njóti
gagnkvæmrar viðurkenningar að einhverju marki innan
Norðurlandanna, þar sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO)
hefur ekki sett fram almennar reglur til að fara eftir.
4. Endurmenntun
Innan NSK eru menn
á einu máli um að setja þurfi fram almennar kröfur um
endurmenntun græðara. Hversu mikil hún þarf að vera er þó
undir hverju fagfélagi komið.
5. Sameiginleg norræn
viðurkenning á menntun
Það er markmið NSK
að þessar viðurkenndu meðferðir séu samþykktar innan
Norðurlandanna svo hægt sé að hafa sameiginlegan vinnumarkað
fyrir græðara.
6. Fagfélögin
Það er markmið NSK
að þau samtök óhefðbundinna meðhöndlara sem eiga aðild að NSK
eða regnhlífarsamtök þeirra séu lýðræðislega skipulögð með
gegnsærri uppbyggingu, til að koma í veg fyrir misnotkun.
7. Siðareglur
Það er markmið NSK
að til séu lágmarkssiðareglur í aðildarsamtökunum. NSK hefur
sett fram sínar siðareglur og mun tryggja að þær séu til
staðar í siðareglum aðildarsamtakanna.
8. Kærur og málsmeðferð
þeirra
Neytendur
óhefðbundinna meðferða skulu hafa eðlilegan rétt til að
leggja fram kvartanir um mistök, vöntun eða misnotkun
meðferða. Hvert fagfélag eða regnhlífarsamtök sem tengjast
NSK skal hafa reglur sem veita neytendum aðgang til að kvarta
og veita viðkomandi meðhöndlara sem kvartað er yfir möguleika
á að skýra út sín sjónarmið. Hvert fagfélag skal hafa óháða
siðanefnd sem getur tekið mál til skoðunar og komist að
niðurstöðu, sem geti falið í sér:
- frávísun kæru
- áminningu
- aðvörun
- brottvikningu úr fagfélagi annað hvort tímabundið eða
endanlega
- tilkynningu til lögreglu- eða heilbrigðisyfirvalda
Gera þarf ráð fyrir áfrýjun, þannig að bæði kærandi og ákærði
hafi möguleika á tveimur málsmeðferðum.
9. Trygging
Það er krafa NSK
að allir meðhöndlarar sem tengjast fagfélögum NSK eða
regnhlífarsamtökum séu tryggðir með starfsábyrgðartryggingu.
Það er mikilvæg trygging fyrir neytandann og meðhöndlara sem
sérhæfðan atvinnuhóp.
10. Meðferðarskýrsla
Það er krafa NSK
að allir meðhöndlarar sem tengjast samtökunum noti
meðferðarskýrslu við vinnu sína. NSK mun stuðla að því að
þróa sameiginlega grunnskýrslu fyrir Norðurlöndin.
11. Árangursmat og
rannsóknir
NSK mun leitast
við að koma á árangursmælingum innan hvers meðferðarforms sem
taki til tegundar meðferðar, sjúkdóms og/eða sjúklingahópa.
NSK mun hvetja til þess að setja í gang rannsóknir til að
skrásetja og staðfesta jákvæðar niðurstöður meðferðar. NSK
mun styrkja slíkar rannsóknir og vinna með einkaaðilum og
opinberum aðilum til að stuðla að framgangi þeirra.
12. Skrásetning
NSK mun styðja
uppsetningu á skráningu meðhöndlara í hverju Norðurlandanna,
þar sem gengið verði út frá sjálfstæðri skráningu meðhöndlara
eftir fagfélögum, en ekki í þeim tilgangi að verða hluti af
hinu opinbera heilbrigðiskerfi.
Skráningarkerfi ætti að innihalda þau atriði sem eru talin
upp hér að ofan.
Samþykkt, Reykjavík, 6. apríl 2003
YFIRLÝSING 2
varðandi
GÆÐATRYGGINGU
Ályktun NSK – Nordiska Samarbetskommittén för
icke-konventionell medicin
NSK eru norræn samstarfssamtök og samanstanda af mismunandi
fagfélögum hefðbundinna og óhefðbundinna meðhöndlara á öllum
Norðurlöndunum.
NSK staðhæfir að norrænar þjóðir nýta sér í síauknum mæli
óhefðbundnar meðhöndlanir til að fyrirbyggja og leysa
heilsufarsvandamál.
NSK staðhæfir einnig að stjórnvöld á Norðurlöndum hafa áhuga
á að koma á samstarfi við Meðferðarsamtök óhefðbundinna
meðhöndlara til að tryggja gæði meðhöndlunarinnar fyrir
almenning.
Norrænu meðferðarsamtökin innan NSK eru samtaka um mikilvægi
þess að tryggja mikil gæði óhefðbundinnar meðhöndlunar.
Skipulag sænsku samtakanna – KAM – er ágætt módel fyrir
meðferðarsamtökin á hinum Norðurlöndunum.
Gæðin eru tryggð með því að :
- Hafa sameiginlega hátt menntunarstig í grunnmenntun
- Hátt sameiginlegt menntunarstig í hverri grein meðhöndlunar
- Að gera háar siðferðiskröfur og tryggja góða starfshætti
- Að tryggja að almenningur sé varinn með því að hafa
atvinnutryggingu
- Að stefna að sameiginlegri skráningu meðhöndlara sem
uppfylla ofantaldar kröfur
- Að stefna að samræmingu innan Norðurlandanna og þannig að
sameiginlegum vinnumarkaði fyrir hefðbundna og óhefðbundna
meðhöndlara á svæðinu
LNS – Landsorganisationen Natursundhetsrådet,
Danmörku, www.lnsnatur.dk
BÍG – Bandalag íslenskra græðara, Íslandi, www.big.is
LKL – Luonnonlääketieteeen Keskusliitto
ry, Finnlandi,
www.lkl.net
NNH – Norske Naturterapeuters Hovedorgansasjon,
Noregi, www.nnh.no
KAM – Kommittén för Alternativ Medicin, Svíþjóð,
www.kam.se
Nánari upplýsingar gefur: Susanne Nordling, formaður NSK –
Nordiska Samarbetskommittén för icke-konventionell medicin,
GSM: + 46-(0)733-925868, Netfang:
susanne.nordling(hjá)bredband.net. Veffang:
www.nsk-center.org